top of page
Fræðsluefni, greinar og fréttir
Search
Fúkyrði eða fullyrðing?
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í máli Egils Einarssonar hefur vakið athygli. Málið reis af instagramfærslu Inga Kristjáns Sigurmarssonar. Undanfarinn var sá að Egill hafði verið kærður fyrir nauðgun, en málið síðan fellt niður af ákæruvaldinu. Inga Kristjáni virðist hafa orðið nokkuð heitt í hamsi vegna þessara tíðinda og setti inn færslu á instagram þar sem birt var stílfærð mynd af Agli. Myndinni fylgdi texti þar sem Egill var kallaður „aumingi“ og ennfremur: “Fuck

Davíð Þór Björgvinsson
Jan 16 min read
Rétturinn til að gleymast. Barátta við vindmyllur?
Menn láta eitt og annað flakka á internetinu og iðrast þess síðar og vilja hylja spor sín. Aðrir rata þangað vegna annarra mistaka í lífinu sem þeir vilja síður að séu rædd þar á bæ. Í það minnsta vilja þeir að Google gleymi þeim eða geri leitina að feilsporum þeirra erfiðari. Þrautin þyngri er að verða við þessu, en internetið hefur fílsminni. Af þessu hafa risið dómsmál sem fræg hafa orðið eins og nú skal rakið. Maður er nefndur Max Mosley og var forseti stjórnar fyrir „for

Davíð Þór Björgvinsson
Jan 16 min read


Um "búrkubann"
Búrkur og mögulegt bann við þeim á almannafæri hefur verið til umræðu undanfarið. Sumpart minnir þessi umræða á lög um friðun héra nr. 23/1914, en þau voru felld úr gildi 75 árum eftir að þau voru sett. Ekki er vitað til þess að héri ( lepus europaeus ) hafi fundist í íslenskri náttúru á gildistíma laganna. Til að gæta sanngirni ber þó að geta þess að lögin voru upphaflega sett í ljósi áforma um að flytja inn héra og sleppa þeim lausum í íslenskri náttúru. Þau áform urðu ekki

Davíð Þór Björgvinsson
Jan 14 min read
Að gjalda líku líkt – dómur um tjáningarfrelsi.
Þann 17. apríl 2014 kvað Mannréttindadómstóll Evrópu upp dóm í máli Mladina v. Slovenia . Í dóminum, sem varðar skýringu á 10. gr. sáttmálans um tjáningarfrelsi, þróar dómstóllinn frekar dómaframkvæmd sína varðandi það sem kalla má “gagnrýnsiverðar eða umdeilanlegar opinberar staðhæfingar”. Fyrri dómar eru reistir á því að þeir sem setja fram slíkar staðhæfingar þurfi sjálfir búa sig undir að slíkum staðhæfingum verði svarað í sömu mynt og sýna umburðarlyndi gagnvart þeim og

Davíð Þór Björgvinsson
Dec 31, 20254 min read
Enn um fullveldi og EES
Reglulega skýtur upp kollinum umræðan um EES og fullveldið og því haldið fram að „fullveldisafsal“ samkvæmt EES-samningum sé í raun meira en fælist í inngöngu í ESB. Röksemdirnar hafa verið þær sömu í meira en 20 ár, þ.e. að EES-ríkin eiga ekki aðild að þeim stofnunum bandalagsins sem koma að undirbúningi og setningu nýrrar löggjafar á sviðum EES-samningsins, þ.e. í meginatriðum þingins, framkvæmdastjórnarinnar og ráðherraráðsins. Fullveldisafsalið er þá sagt felast í því að

Davíð Þór Björgvinsson
Dec 31, 20255 min read


Menntun og störf
Dr. jur. Davíð Þór Björgvinsson hrl. Menntun Doktorspróf í lögum (doctorat sciences juridiques, droit internationale), Université de Strasbourg, Strassborg, Frakklandi 2013. LLM, Duke University School of Law, Norður Karólínu, Bandaríkjunum 1987. Cand. Jur. lagadeild Háskóla Íslands 1985. BA, sagnfræði og heimspeki frá heimspekideild Háskóla Íslands 1982. Stúdentspróf frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977. Starfsferill eftir laganám Skipaður dómari við Landsrétt frá 1. janúar

Davíð Þór Björgvinsson
Dec 31, 202522 min read
bottom of page